1. Dómnefndarstörf (þar með taldir undirbúningsfundir)
Lágmarksútkall 2 klst. fyrir hvern fund. Dómnefndarstörf felast í mati og vali á verkum til sýninga eða verðlauna og krefjast því ábyrgðar og þekkingar.
2. Hönnun og yfirstjórn sýninga:
Í hönnun flest ákvörðun um fyrirkomulag og útlit sýningar, söfnun mynda og gagna, svo og undirbúningur dagskrár sýningar og verkstjórn við frágang sýninga.
3. Viðgerð á eigin verkum :
Lágmarksgreiðsla er 2 klst.
4. Pöntuð leiðsögn myndlistarmanns um söfn eða sýningar, eigin eða annarra, einnig leiðsögn með erlenda eða innlenda gesti á vegum opinberra aðila.
Lágmarksgreiðsla er 2 klst.
Greiða skal fæðiskostnað leiðsögumanns, svo og bifreiðakostnað.
Fyrir ofangreind störf skulu greidd tímalaun kr. 8.342* -og miðast þau laun við sérfræðistörf eftir 6 ár samkvæmt taxta hjá BHMR.
* Taxtinn er uppfærður samkvæmt vísitölu neysluverðs október 2011.