Fara í leiðarkerfi


Samband Íslenskra Myndlistarmanna
The association of Icelandic visual artists

Úthlutun úr styrktarsjóði Svavars Guðnasonar listmálara og Ástu Eiríksdóttur

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Sirra (Sigrún Sigurðardóttir) myndlistarkonur hlutu styrki úr styrktarsjóði Svavars Guðnasonar listmálara og Ástu Eiríksdóttur, eiginkonu hans. Úthlutunin fór fram í Listasafni Íslands og hljóðuðu styrkirnir upp á 400 þúsund krónur hvor. 

Styrktarsjóðurinn var stofnaður árið 1993 til að heiðra og varðveita minningu Svavars og til eflingar íslenskri myndlist á komandi árum. Formaður styrktarsjóðsins er nú Karl Ómar Jónsson.

Ingunn Fjóla er fædd árið 1976 og nam myndlist við Listaháskóla Íslands. Í framhaldi af því stundaði hún nám í listasögu við háskólann í Árósum. Verk hennar hafa verið sýnd á fjölda einka- og samsýninga hér á landi sem og erlendis. Má þar nefna Tékkland, Bandaríkin, Litháen og Þýskaland. Ingunn er annar helmingur samstarfstvíeykisins Hugsteypu, sem staðið hefur fyrir fjölda innsetninga í listasöfnum hér á landi.

Sirra (Sigrún Sigurðardóttir) er fædd á Selfossi 1977. Hún útskrifaðist með BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2001 og hélt áfram námi í listfræði við Háskóla Íslands 2003 til 2004. Undanfarin ár hefur Sirra verið mjög virk meðal yngstu kynslóðar íslenskra myndlistarmanna. Hún á nú þegar fjölda sýninga að baki bæði hér á landi og erlendis. Sirra er einn af stofnendum Kling og Bang gallerís.