WORLD OF FOLK – fyrirlestur með Rögnu Fróða um hugmyndafræði Li Edelkoort
Ragna Fróðadóttir, hönnuður og listrænn stjórnandi hjá Edelkoort inc. mun halda fyrirlestur í Norræna húsinu 11.febrúar n.k. kl. 14.00. Um er að ræða svokallað trend forecast sem fyrirtækið Edelkoort er heimsþekkt fyrir. Í fyrirlestri sínum mun Ragna leggja áherslu á áhrif þjóðarmenningar á strauma og stefnur í hönnun.
Ragna Fróðadóttir nam textíl- og tískuhönnun í París og Reykjavík. Eftir að hafa haldið úti eigin fatahönnunarmerki, Path of Love, í um áratug flutti hún til New York og hóf störf hjá alþjóðlega fyrirtækinu Edelkoort inc. Ragna Fróðadóttir tók þátt í Norræna tískutvíæringnum 2011 í Seattle.
