Smugumenning er nýtt svæði á vefritinu Smugan.is í umsjón Gunnars Guðbjörnssonar.
Gunnar hóf störf við menningarumfjöllun á vefnum Pressan.is á svæðinu Menningarpressan haustið 2010 en skömmu fyrir jól 2011 skipti um vettvang.
Ætlunin er að halda áfram svipuðu starfi á Smugunni . Smugan ervefur í miklum vexti og hafa lesendur síðustu vikur verið í kringum 30.000 en lestur síðunnar er í miklum vexti. Ástæða er til að ætla að sú þróun haldi áfram með aukinni þjónustu.
Nýjungar á síðunni eru ýmsar og er ætlunin að bjóðarþar upp á viðburðadagatal og sérstakt blogg með áherslu á menningu, svo eitthvað sé nefnt. Ætlunin er að viðburðadagatal innihaldi tengla á umfjöllun innan Smugunnar og ekki síður á aðra miðla til að veita sem mestar upplýsingar um menningarviðburði.
Fólk er hvatt til að kynna sér hið nýja svæði og ekki síður að setja sig í samband við stjórnanda menningarhlutans í netfangið gunnarg@smugan.is með ýmsar fréttir og tilkynningar um menningartengd málefni.
http://smugan.is/smugumenning/
http://www.facebook.com/pages/Smugumenning/340075056008591?sk=page_insights_likes