Fara í leiðarkerfi


Samband Íslenskra Myndlistarmanna
The association of Icelandic visual artists

Opið fyrir umsóknir í Gestavinnustofum SÍM í Berlín

Opið fyrir umsóknir í Gestavinnustofum SÍM í Berlín fyrir tímabilið 1. febrúar til 31. ágúst,umsóknarfrestur rennur út 17. janúar 2011

SÍM hóf í október 2010 rekstur á gestavinnustofum fyrir félagsmenn í Berlín. Gestavinnustofurnar eru hugsaðar til lengri og styttri dvalar fyrir listamenn með vinnurými, frá einni viku til 3 mánaða.

Með þessum nýju vinnustofum SÍM í Berlín gefst félagsmönnum tækifæri á að dvelja erlendis og sækja sér innblástur, ásamt því að geta unnið að list sinni á sömu kjörum og erlendir listamenn gera sem dvelja í Gestavinnustofum SÍM í Reykjavík.

Íbúðin er staðsett í Neue Bahnhofstrasse 27 í Friedrichshain í austurhluta Berlínar, aðeins 5 mínútna gangur er frá Ostkreuz lestarstöðinni. S-9 fer beint frá flugvellinum Berlín Schönefeld (SXF) til Ostkreuz.

Allar nánari upplýsingar um gestavinnustofur SÍM í Berlín er að finna hér