Styrktarsjóður Richard Serra var stofnaður í tilefni af gjöf listamannsins á myndverkinu ÁFANGAR, sem reist var í Viðey í tengslum við Listahátíð í Reykjavík 1990. Viðtakendur gjafarinnar voru Listahátíð í Reyakjavík, Listasafn Íslands og Reykjavíkurborg.
Markmið sjóðs Richard Serra er að efla höggmyndalist á Íslandi með því að veita ungum myndhöggvurum sérstök framlög til viðurkenningar á listsköpun þeirra.
Stjórn sjóðsins úthlutar úr sjóðnum annað hvert ár, í fyrsta skipti árið 1992. Stjórnin ákvarðar hvernig staðið skuli að úthlutun hverju sinni.
Stjórn sjóðsins skipa Halldór Björn Runólfsson formaður, Ásmundur Ásmundsson fyrir Myndhöggvarafélagið og Ragnhildur Stefánsdóttir fyrir SÍM.
Afhending viðurkenningar úr sjóðnum fór fram föstudaginn 16. desember í Listasafni Íslands og var það í sjöunda sinn.
Hekla Dögg Jónsdóttir myndlistarmaður hlaut styrk að upphæð kr. 500.000.
Sjá hér vefsíðu Heklu Daggar: http://this.is/hekla/