Fara í leiðarkerfi


Samband Íslenskra Myndlistarmanna
The association of Icelandic visual artists

Dagur myndlistar 05. nóvember 2011 – Skráning


Við auglýsum opnar vinnustofur á Degi myndlistar frá 14:00 – 17:00 laugardaginn 05. nóvember 2011.

Allir myndlistarmenn eru hvattir til að opna vinnustofur sínar almenningi og gefa þeim þannig örlitla innsýn inn í starf listamannsins.

Skráning á opnum vinnustofum fer fram á vefsíðunni www.dagurmyndlistar.is undir skráning listamanna Smelltu hér til að fara beint í eyðublaðið.
Eyðublaðið var sett upp í ár til að auðvelda alla bakvinnslu og fá allar upplýsingar á sem þægilegastan hátt svo að við getum einbeitt okkur að því að kynna opnar vinnustofur sem best og fá sem flesta til að kíkja í heimsókn.

 

Búið er að uppfæra vefsíðuna og er nú hægt að finna lista yfir alla sem opna vinnustofur sínar beint fyrir neðan gagnvirka kortið á síðunni. Einnig verða fleiri breytingar gerðar út frá ábendingum sem komu fram eftir Dag myndlistar 2010.

 

Í ár verður vefsíðan tengd við www.umm.is síðurnar sem fengu nýtt útlit í fyrra. Við hvetjum alla til að uppfæra síðunar sína sem og aðrar vefsíður sem þið haldið úti svo að hægt sé að vísa beint á þær ef fólk vill kynna sér einstaka listamenn nánar.

Ef að þið hafið ekki enn kíkt á nýju www.umm.is síðuna þá hvetjum við ykkur endilega til að gera það.

 

Listamenn senda svo eina til tvær myndir á netfangið dagurmyndlistar@gmail.com (til dæmis eina mynd af listamanninum og eina af verki).