Fara í leiðarkerfi


Samband Íslenskra Myndlistarmanna
The association of Icelandic visual artists

Boðorðin fimmtán, Listalausi dagurinn 1. nóvember 2011

ÞÚ SKALT EKKI LISTAR NJÓTA

Boðorðin fimmtán, -til umhugsunar á listalausum degi 1. nóvember 2011:

 

1)      Ekki fara á listasöfn, hönnunarsöfn, gallerí eða minjasöfn sem geyma listaverk.

2)      Ekki horfa á myndlistarverk, þar með talin málverk, ljósmyndir, höggmyndir og innsetningar, hvort sem er úti sem inni.

3)      Ekki fara á tónleika.

4)      Ekki hlusta á tónlist, hvorki af CD, vínil , snældu, stafrænum tónlistarspilurum né snjallsímum (hringitónar meðtaldir).

5)      Ekki spila tölvuleik með grafískri mynd.

6)      Ekki fara á danssýningu.

7)      Ekki lesa skáldsögu, ljóð eða nokkurn annan texta sem talist gæti til fagurbókmennta.

8)      Ekki fara í leikhús.

9)      Ekki horfa á kvikmynd, hvorki í bíó, af tölvu, í sjónvarpi né hverskonar skjá.

10)   Ef einhvers konar listaverk birtist í sjónvarpi, t.d. í fréttum eða auglýsingum, ber að loka augunum eða líta undan.

11)   Ef tónverk heyrist í sjónvarpi eða útvarpi ber að lækka niður í tækinu.

12)   Ekki horfa á byggingar sem eru hannaðar af arkitekt.

13)   Ekki horfa á eða ganga um garða sem eru hannaðir af landslagsarkitekt.

14)   Ekki horfa á eða ganga í sérhönnuðum fötum eftir fatahönnuð.

15)   Ekki gera neitt eða njóta neins sem hægt væri að túlka sem list eða hefur í sér listrænt gildi, þar með talin verk dansara, hönnuða, leikara, myndlistarmanna, rithöfunda og tónlistarmanna.