Fara í leiðarkerfi


Samband Íslenskra Myndlistarmanna
The association of Icelandic visual artists

Furðuverur og tröll – Listasmiðja fyrir börn og opið hús – Gullkistan

Furðuverur og tröll

Listasmiðja fyrir börn og opið hús

Þau hafa haldið listasmiðjur fyrir börn víða um heim og mörg íslensk börn hafa notið góðs af.

Gullkistan, dvalarstaður fyrir skapandi fólk á Laugarvatni heldur listasmiðju fyrir börn á öllum aldri laugardaginn 22. október í Eyvindartungu við Laugarvatn.

Kennari er indverski myndlistamaðurinn Baniprosonno, en hann er gestur Gullkistunnar í októbermánuði ásamt fleiri listamönnum.

Listasmiðjan stendur frá kl. 13 – 16 og verður boðið upp á hressingu. Gjald krónur 4000.-, efni innifalið. Skráning á námskeiðið í tölvupósti á gullkistan@gullkistan.is eða í síma 892-4410.

Opið hús verður í vinnustofu Gullkistunnar milli kl. 15.30 og 17.00

Þar verða til sýnis verk október gesta Gullkistunnar en þar dvelja nú fjórir listamenn.

 

Listasmiðjan er hluti af námskeiðaröð á vegum Gullkistunnar undir heitinu Leitin að gullinu og er niðurgreidd að hluta af Menningarráði Suðurlands.

Baniprosonno og eiginkona hans Putul eru nú í þriðja sinn á Íslandi.