Notandanafn:

Lykilorð:

 
Listskreytingasjóður
CIA.IS
Myndstef
Listamannaíbúð
Fundarsalur
Endurbygging hússins


CIA.IS - Center for Icelandic Art - Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar 


Forstöðumaður er Dorothée Kirch og starfsmaður Rebekka S. Ragnarsdóttir.


 
Hlutverk

 

Hlutverk CIA.IS er:

- Að veita upplýsingar um íslenska samtímamyndlist (með miðstöð, vefsíðu og fréttabréfi)

- Styrkja kerfi and listamannaskipti á milli landa

- Samstarfsverkefni

- Tengslamyndun og umræður

- Upplýsingar um íslenska myndlist

 

CIA.IS er vettvangur upplýsinga fyrir íslenska myndlistarmenn, jafnt sem erlenda, sýningastjóra, safnara, blaðamenn og alla þá sem eru áhugasamir um íslenska myndlist.

 

Miðstöð CIA.IS

Miðstöð CIA.IS í Hafnarstræti 16 er opin mánudaga til föstudaga á milli kl. 10 og 16. Gestir hafa aðgang að bókasafni og grunnupplýsingum um yfirstandandi sýningar og gefst kostur á frekari innsýn í fjölbreytileika íslenskrar myndlistar í dvd-safni, sem samanstendur af diskum eftir 11 listamenn í senn. Að auki verður erlendum listastofnunum boðið að kynna starfsemi sína með svipuðu formi.
 

Vefsíða

Vefsíða cia.is er gluggi inn í íslenskan myndlistarheim. Á síðunni er að finna grunnupplýsingar um öll söfn á landinu, gallerí og aðrar myndlistarstofnanir og -félög. Síðan er tengd við gagnagrunninn umm.is, upplýsingavef um íslenska myndlist og myndhöfunda. Að auki er að finna á cia.is allar nauðsynlegar upplýsingar um styrkjakerfi CIA.IS, auk mikilvægra tengla á erlendar síður.

 

Styrkjakerfi og listamannaskipti á milli landa

CIA.IS styrkir íslenska myndlistarmenn til starfa og sýningahalds erlendis. Uppbygging tengslanets verður fyrsta skrefið að Artist-Exchange Program. Með þessu aðstoðar CIA.IS listamenn við að kynnast alþjóðlegum myndllistarheimi og færa þekkingu til starfsbræðra sinna.

 

Samstarf og framleiðsla

CIA.IS vinnur að samvinnuverkefnum með íslenskum og/eða erlendum samstarfsaðilum. CIA hefur átt í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík auk samstarfs vegna íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum.

Í nánustu framtíð er eitt aðal verkefni CIA.is, að byggja upp samstarf við gestavinnustofur, listastofnanir, gallerí og fleiri aðila.

 

Tengslamyndun og umræður

Gestaáætlun CIA.IS er síðan enn önnur leið til að útvíkkunar á alþjóðlegu tengslaneti, samböndum og upplýsingaskiptum. Í samstarfi við aðrar stofnanir, mun CIA.IS bjóða erlendum sýningarstjórum, gagnrýnendum, listfræðingum og öðrum fræðimönnum til landsins, kynna þeim íslenskan myndlistarheim og færa sérfræðiþekkingu hingað til lands með fyrirlestrum eða rannsóknum.

CIA.IS er fyrsti viðkomustaður listamanna og þeirra sem eru áhugasamir um íslenska myndlist. CIA.IS hvetur til umræðna um myndlist, jafnt innlenda sem erlenda.

 




Stofnskrá fyrir Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar

 

Skipulagsskrá fyrir sjálfseignarstofnunina KÍM - Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar

 

Stofnun:

1. gr.
Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar (KÍM) er sjálfseignarstofnun með sérstaka stjórn og starfar á grundvelli laga nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa skv. staðfestri skipulagsskrá. Heimili hennar og varnarþing er í Reykjavík.

Stofnunin ein ber ábyrgð á skuldbindingum sínum. Stofnunin er ekki háð neinum lögaðilum og mun ekki hafa með höndum atvinnurekstur í skilningi laga nr. 33/1999.

Stofnendur Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar eru:
Hafnarborg menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, Listasafnið á Akureyri, Listasafn ASÍ, Listasafn Íslands, Listasafn Kópavogs, Listasafn Reykjavíkur, Myndstef, Nýlistasafnið, Samband íslenskra myndlistarmanna og Útflutningsráð. Hver framangreindra stofnenda tilnefnir einn fulltrúa í fulltrúaráð og annan til vara nema Samband íslenskra myndlistarmanna sem tilnefnir fimm fulltrúa og jafn marga til vara.

Stofnendur leggja fram stofnframlög til Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar, skv. sérstökum samningum, þar sem það á við. Stofnfé Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar verður kr. 600.000.- Af stofnfé varðveitist á núgildandi verðlagi kr. 581.000,- sem skal vera óskerðanlegur höfuðstóll og ávaxtað með tryggilegum hætti. Fjárhagslegar skuldbindingar stofnunarinnar umfram stofnframlag eru stofnendum óviðkomandi.

 

Markmið:
2. gr.
Markmið Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar er að kynna íslenska myndlist erlendis og auka þátttöku íslenskra myndlistarmanna í alþjóðlegu myndlistarstarfi. Það gerir miðstöðin m.a. með því að:
a. Eiga frumkvæði að og efna til samstarfs um sýningar á íslenskri myndlist á alþjóðlegum vettvangi.
b. Bjóða blaðamönnum, sýningarstjórum og öðrum erlendum aðilum til  Íslands í því skyni að efla tengsl við alþjóðlegt listaumhverfi.
c. Taka þátt í alþjóðlegu samstarfi um vinnustofur og kynningum á  listamönnum sem þar dvelja.
d. Taka þátt í öðru alþjóðlegu samstarfi sem forstöðumaður og stjórn telja að þjóni markmiði starfseminnar.
 e. Eiga frumkvæði að og taka þátt í skipulagningu alþjóðlegra  myndlistarviðburða á Íslandi.
 f. Hafa forgöngu um að fyrir hendi sé listamannatal á vefnum í samvinnu við listamenn og samtök þeirra.
g. Veita ráðgjöf um kynningu á íslenskri myndlist erlendis, t.d. til utanríkisþjónustunnar og annarra er þess óska.
h. koma upp vef þar sem upplýsingum og kynningum er komið á framfæri og annarri upplýsingastarfsemi sem best þykir hæfa hverju sinni. Ritstjórn og ábyrgð á efni vefsins er á hendi forstöðumanns.
 i. Önnur verkefni sem forstöðumaður og stjórn ákveða.

Ársfundur fulltrúaráðs:
3. gr.
Fulltrúaráð KÍM kemur saman til ársfundar, sem skal haldinn fyrir lok maí mánaðar ár hvert. Stjórn boðar til ársfundar bréflega með minnst 14 daga fyrirvara. Fundurinn er löglegur ef löglega er til hans boðað. Rétt til setu á ársfundi fulltrúaráðs hefur einn fulltrúi frá hverjum stofnanda en Samband íslenskra myndlistarmanna hefur rétt á fimm fulltrúum, sbr. 1.gr.
Formaður stjórnar stýrir ársfundum en fundurinn kýs ritara til að rita fundargerðir  og skulu þær sendar fundarmönnum. Hverjum fundarmanni er
heimilt að fá bókaða stutta greinargerð um afstöðu sína til einstakra mála.
Á ársfundi er tilkynnt um skipun stjórnar sbr. 5. gr.

 

4. gr.
Dagskrá ársfundar skal vera sem hér segir:
1) Skýrsla um starfsemi síðasta starfsárs.
2) Reikningar liðins árs kynntir.
3) Fjárhagsáætlun kynnt.
4) Tekin afstaða til aðildargjalda.
5) Önnur mál.

Til þess að mál nái fram að ganga á ársfundi þarf að minnsta kosti
helmingur fulltrúa að vera á fundi og meiri hluti þeirra að greiða atkvæði með málinu.

 

Stjórn:
5. gr.
Starfsemi KÍM er á ábyrgð stjórnar og forstöðumanns, sem hún ræður. Stjórn stofnunarinnar skipa fimm menn. Skulu tveir þeirra tilnefndir af Sambandi íslenskra myndlistarmanna, einn fulltrúi tilnefndur af menntamálaráðuneytinu og einn af utanríkisráðuneytinu. Einn fulltrúi skal kosinn á fundi forstöðumanna listasafna, sem aðild eiga að stofnuninni, með einfaldri atkvæðagreiðslu. Forstöðumaður Listasafns Íslands boðar skriflega til fundarins með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.  Varamenn skulu  tilnefndir með sama hætti. Stjórnarmenn eru tilnefndir til þriggja ára í senn og mega ekki sitja meira en tvö tímabil. Stjórnin skiptir með sér verkum og kýs úr sínum hópi formann, varaformann, ritara og meðstjórnendur til eins árs í senn.
Stjórnin setur reglur sem miða að því að tryggja hæfilega endurnýjun innan hennar þannig að allir fulltrúar sitji ekki sex ár samfellt. Reglur þessar skulu lagðar fyrir ársfund til samþykktar.

 

6. gr.
Stjórn KÍM heldur fundi svo oft sem þurfa þykir. Hún ræður forstöðumann og þarf samþykki allra stjórnarmanna fyrir þeirri ráðningu.

Stjórnarfundur er ályktunarbær ef formaður og a.m.k. 2 aðrir stjórnarmenn
sækja hann. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundi. Halda skal fundargerðir um stjórnarfundi.

Stjórnin ber ábyrgð á rekstri, fjárreiðum og fjárvörslu stofnunarinnar og samþykkir fjárhagsáætlun. Allar meiri háttar fjárskuldbindingar eru háðar samþykki stjórnarinnar.

 

Fagráð:
7. gr.
Í fagráði sitja forstöðumaður, annar tveggja fulltrúa SÍM í stjórn KÍM, skv. tilnefningu stjórnar SÍM og einn úr stjórn KÍM skv. ákvörðun hennar. Fagráð tekur ákvarðanir, f.h. stjórnar, um veitingu styrkja, velur listamenn til þátttöku í alþjóðlegum myndlistarsýningum og öðrum verkefnum sem eru á vegum KÍM. Fagráð skal skipað til tveggja ára í senn.

Forstöðumaður stýrir fundum fagráðs og leggur fyrir það erindi. Fulltrúar
í fagráði eru í störfum sínum bundnir fullum trúnaði gagnvart stjórn KÍM.
Verði ágreiningur um afgreiðslu málefnis í fagráði skal skjóta þeim ágreiningi til stjórnar KÍM sem afgreiðir málið endanlega.

 

Forstöðumaður:
8. gr.
Forstöðumaður er yfirmaður stofnunarinnar í fullu starfi, ráðinn af stjórn hennar til fimm ára í senn. Hann mótar starfsemi stofnunarinnar og er ábyrgur fyrir henni gagnvart stjórn. Hann sér um daglegan rekstur og stjórn fjármála KÍM í umboði stjórnar, vinnur að fjáröflun og undirbýr gerð fjárhagsáætlunar og annast reikningsskil. Hann leggur fjárhagsáætlun fyrir stjórn til samþykktar og er ábyrgur fyrir framkvæmd hennar gagnvart stjórn. Hann ræður annað starfsfólk stofnunarinnar. Í ráðningarsamningi forstöðumanns skal kveðið á um starfstíma og starfskjör að öðru leyti. Ráðning hans skal tilkynnt á ársfundi. Starf forstöðumanns skal auglýst laust til umsóknar í fjölmiðlum. Forstöðumaður situr stjórnarfundi með málfrelsis- og tillögurétti nema sérstakar ástæður mæli gegn því, s.s. þegar fjallað er um starfskjör hans.


Um fjárhag og reikningsskil:
9. gr.
Tekjur KÍM, auk vaxta af stofnframlagi, eru framlög frá ríki og öðrum aðilum, sbr. og 11. gr., tekjur af þjónustu auk frjálsra framlaga frá einstaklingum, fyrirtækjum og samtökum og annars aflafjár. Fé stofnunarinnar skal einvörðungu varið til að standa straum af þeim kostnaði sem til fellur við að vinna að markmiðum þeim sem skilgreind eru í 2. gr.

Gera skal einstaklingum og öðrum lögaðilum kleift að gerast styrktaraðilar stofnunarinnar, skv. nánari ákvörðun stjórnar um styrktarmannakerfi.

Forstöðumaður undirbýr gerð fjárhagsáætlunar. Stjórnin gengur frá áætluninni í endanlegri gerð og kynnir hana ársfundi fulltrúaráðs til staðfestingar.

 

10. gr.
Reikningsár KÍM er almanaksárið. Um reikningshald fer að lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Forstöðumaður skal í fyrstu viku marsmánaðar ár hvert leggja eftirfarandi gögn fyrir stjórn KÍM til afgreiðslu:
1. Skýrslu um starfsemi síðasta starfsárs
2. Ársreikning liðins starfsárs.
Reikningar KÍM skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda,
sem skipaður er af stjórn til a.m.k. tveggja ára í senn. Formaður stjórnar skal sjá til þess að ársreikningur berist Ríkisendurskoðun með tilskildum hætti ár hvert.

 

11.gr.
Stjórnin gerir samning við menntamálaráðuneytið um fjárframlag til rekstrar KÍM. Þá gerir stjórnin samkomulag við ráðuneytið um verkefni sem KÍM tekur að sér fyrir það. Stjórninni er heimilt að gera viðlíka samninga við önnur ráðuneyti, sveitarstjórnir, félög og stofnanir svo fremi sem verkefnin falla að markmiðum KÍM.

 

Um úrsögn aðila, slit stofnunar og breytingar á skipulagsskrá:
12. gr.
Stofnunin verður einungis lögð niður ef ársfundur fulltrúaráðs samþykkir það með ¾ hlutum atkvæða. Verði samþykkt að leggja stofnunina niður skal menntamálaráðuneytið ákveða í samráði við síðustu stjórn KÍM hvernig fara skuli með eigur hennar.

 

13. gr.
Skipulagsskrá KÍM verður því aðeins breytt að ¾  fulltrúa á ársfundi fulltrúaráðs samþykki slíkt, enda hafi þess verið getið í fundarboði að tillaga um breytingu á henni verði lögð fram á fundinum. Tillögur um breytingar þurfa að berast stjórn fjórum vikum fyrir aðalfund.

Ef tilskilinn fjöldi fulltrúa er ekki á ársfundi fulltrúaráðs við afgreiðslu á breytingum
á skipulagsskrá, skal senda tillögurnar til aðila stofnunarinnar og boða til
framhaldsfundar innan mánaðar og ræður þá afl atkvæða um samþykkt þeirra.

 

14.gr.

Ef ágreiningur rís um skilning á skipulagsskrá þessari sker ársfundur  fulltrúaráðs úr um þann ágreining að fenginni umsögn ágreiningsaðila og stjórnar.

 

15. gr.
Leita skal staðfestingar dómsmálaráðherra á skipulagsskrá þessari og breytingar á henni skulu einnig hljóta staðfestingu sama ráðherra.

 

16. gr.
Skipulagsskrá þessi öðlaðist gildi á stofnfundi Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar 17. desember 2003.  Á framhaldsstofnfundi, sem halda skal eigi síðar en 15. janúar 2004, skal tilkynna tilnefningu í stjórn.

 

Undirskrift stofnaðila:

 

Hafnarborg menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar
Undirritun með fyrirvara um samþykki stjórnar Hafnarborgar

Pétrún Pétursdóttir 


Listasafnið á  Akureyri
Undirritun með fyrirvara um samþykki stjórnar Listasafnsins á Akureyri

Hannes Sigurðsson


Listasafn ASÍ
Undirritun með fyrirvara um samþykki stjórnar Listasafns ASÍ

Kristín Guðnadóttir


Listasafn Íslands
Undirritun með fyrirvara um samþykki safnráðs Listasafns Íslands

Ólafur Kvaran


Listasafn Kópavogs
Undirritun með fyrirvara um samþykki stjórnar Listasafns Kópavogs

Guðbjörg Kristjánsdóttir


Listasafn Reykjavíkur
Undirritun með fyrirvara um samþykki menningarmálanefndar Reykjavíkur

Eiríkur Þorláksson


Myndstef
Undirritun með fyrirvara um samþykki stjórnar Myndstefs

Knútur Bruun


Nýlistasafnið
Undirritun með fyrirvara um samþykki stjórnar Nýlistasafnsins

Geir Svansson


Samband íslenskra myndlistarmanna

Áslaug Thorlacius


Útflutningsráð
Undirritun með fyrirvara um samþykki stjórnar Útflutningsráðs

Jón Ásbergsson

 

Stjórn KÍM

Ingibjörg Pálmadóttir, formaður

Elín Flygenring

Helgi Þorgils Friðjónsson

Sigrún Hrólfsdóttir

Ólafur Kvaran

 

 

 

 

 

 

©SIM  Samband íslenskra myndlistarmanna - Pósthólf 1115, IS-121, Reykjavík, Ísland - Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland.
Sími: 551 1346 - Fax: 562 6656 - netfang: sim@simnet.is - Skrifstofan er opin frá kl. 10:00 til 16:00.