|
|
|
|||||||||||||||||||
|
MUGGUR- TENGSLASJÓÐUR FYRIR MYNDLISTARMENN
Muggur - auglýsir eftir umsóknum
Umsókarfrestur er til 1. mars 2010, póststimpill gildir.
Þeir sem þegar hafa fengið úthlutað styrk úr dvalarsjóði Muggs annars vegar og ferðasjóði Muggs hins vegar þurfa að skila greinagerð áður en sótt er um aftur.
Umsóknarfrestur vegna verkefna sem hefjast á tímabilinu 1. ágúst ? 30. desember 2010 verður 15. júní 2010.
Umsóknarfrestur vegna verkefna sem hefjast á tímabilinu 1. desember ? 30. mars 2011 verður 15. október 2010.
Til að geta fengið úthlutun úr dvalarsjóði Muggs þarf umsækjandi að vera fullgildur skuldlaus félagi í SÍM og leggja fram tilskilin gögn er staðfesti boð um þátttöku í myndlistarviðburði eða úthlutun á aðstöðu til vinnu við myndlist. Ekki er veitt fé vegna dvalar í vinnustofum þegar fullir dvalarstyrkir fylgja úthlutun.
Styrkþegar undirgangast skuldbindingar gagnvart sjóðunum samkvæmt sérstökum samningum sem gerðir verða í kjölfar úthlutunar og kveður m.a. á um að styrkþegum beri að skila stuttri greinargerð um notkun styrksins.
Mikilvægt er að hafa umsóknina vandaða, skýra og hnitmiðaða. Lesa reglur og leiðbeiningar vel.
Umsóknareyðublað, stofnskrá og reglur um úthlutun er að finna á heimasíðu SÍM, www.sim.is. Nánari upplýsingar um Mugg eru einnig veittar á skrifstofu SÍM, sim@simnet.is, s. 551 1346
Stofnskrá Muggs Umsóknareyðublað Muggur Muggur Reglur
Greinargerð
|
|||||||||||||||||||
|
©SIM Samband íslenskra myndlistarmanna - Pósthólf 1115, IS-121, Reykjavík, Ísland - Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland. |
||||||||||||||||||||