Notandanafn:

Lykilorð:

 
Félagsskírteini
Styrkir
Gjaldskrá
Samkeppnisreglur
Samningar
Vinnustofur SÍM
Gestavinnustofur
Fjölmiðlar
IAA
Muggur
Artótek
Skattar og gjöld
Menningarhús Ísjaka

GESTAVINNUSTOFUR Á ÍSLANDI



Upplýsingar um gestavinnustofur erlendis eru á umm.is

GESTAVINNUSTOFA SÍM

Hafnarstræti 16, Reykjavík
 

Samband íslenskra myndlistarmanna og Reykjavíkurborg reka listamannaíbúð að Hafnarstræti 16, í SÍM húsinu, sem ætluð er til dvalar fyrir íslenska og erlenda listamenn.  Gestavinnustofan er í eigu Reykjavíkurborgar en SÍM annast reksturinn. 

Þeir sem í íbúðinni dvelja, greiða dvalargjöld sem ákveðin eru af SÍM. Þessi gjöld eru lægri en almenn leiga í Reykjavík.  

Húsnæðið er samtals um 100 fm og skiptist í eldhús, stofu, baðherbergi og 3 svefnherbergi með tveimur rúmum. Íbúðin er búin öllum nauðsynlegustu búsáhöldum, sængurfatnaði, handklæðum þvottavél, þurrkara og sjónvarpi.  Í gestaíbúiðinni  geta dvalið 3-6 gestir í einu.  



 




GESTAVINNUSTOFA SÍM

Seljavegi 32, Reykjavík
 

Samband íslenskra myndlistarmanna rekur listamannaíbúð ásamt vinnustofu að Seljavegi 32 í Reykjavík, sem ætluð er til dvalar fyrir íslenska og erlenda listamenn. 

Þeir sem í íbúðinni dvelja greiða dvalargjöld sem ákveðin eru af stjórn SÍM. Gestavinnustofunni er úthlutað í 1 - 3 mánuði í senn. Dvalargestir skuldbinda sig til að hlíta reglum sem SÍM setur varðandi afnot af húsnæðinu og vinnuaðstöðunni.

 

Í gestavinnustofunni geta dvalið  10- 16 listamenn í einu. Öll aðstaða er sameiginleg. Húsnæðið er samtals um 250 fm og skiptist í eldhús, stofu, 2 baðherbergi, 6 vinnustofur og 9 svefnherbergi, hvert með tveimur rúmum. Íbúðin er búin öllum nauðsynlegustu búsáhöldum, sængurfatnaði, handklæðum þvottavél og sjónvarpi.  

 

Gestavinnustofan er auglýst laus til umsóknar tvisvar ár ári og er umsóknarfrestur 15. apríl og 1. október ár hvert.  

 
Umsóknareyðublað Seljavegur 



GULLKISTAN

Gullkistan, dvalarstaður fyrir skapandi fólk á Laugarvatni
Aðstaða fyrir skapandi fólk í öllum listgreinum og öllum fræðigreinum. Frábært fyrir litla hópa til að vinna að afmörkuðum verkefnum eða fyrir einstaklinga að vinna í algjöru næði.
Fínar rúmgóðar íbúðir með öllum þægindum, 4-6 svefnplássum, interneti, svölum og þvottahúsi. Vinnustofa í sérhúsnæði.


Sjá nánar á gullkistan.is

Netfang: gullkistan@gullkistan.is



NES LISTAMIÐSTÖÐ Á SKAGASTRÖND
 
Nes listamiðstöð var stofnuð í marsmánuði 2008 á Skagaströnd. Alþjóðleg listamiðstöð sem þessi byggir á því að listamönnum sé fengin til afnota vinnustofa, sem og gistirými meðan á dvölinni stendur.

Nes listamiðstöð
Fjörubraut 8
545 Skagaströnd

Netfang: nes(hjá)neslist.is
Netfang fyrir umsóknir: umsoknir(hjá)neslist.is
www.nelist.is


HERHÚSIÐ Á SIGLUFIRÐI
www.herhusid.com
herhusid@simnet.is

Gestavinnustofa
fyrir innlenda og erlenda myndlistamenn, skáld, tónlistamenn eða hverja þá sem starfa að listsköpun.
Á neðri hæð hússins er 70 fm vinnusalur með setustofu, trönum, vaski og vinnuborðum. Þar er einnig baðherbergi með sturtu. Á efri hæðinni er björt stúdíóíbúð (rúm fyrir tvo).

Dvalartími er að jafnaði 1 mánuður.  Í lok dvalartíma er gert ráð fyrir að listamenn kynni verk sín fyrir almenningi í salnum. Dvalargjald er kr. 15.000 kr. á mánuði, hiti og rafmagn innifalið. Möguleiki er opin adsl tenging fyrir 3000 kr. á mánuði en það er í rauninni óþarfi fyrir þá sem eru með fartölvu og þráðlausa tengingu því kaffihús eitt hér í bæ er með þráðlausa internettengingu. Tryggingargjald er 3000 kr. sem dvalargestur fær endurgreitt í lok dvalar enda sé húsnæði í sama standi og hann tók við því. 
 



GILFÉLAGIÐ

Kaupvangsstræti 23

pósthólf 115

600 Akureyri.

 

s: 466-2609 / 461-2609

e-mail: listagil@listagil.is

 

Húsnæði Gestavinnustofunnar er samtals um 60 m2 sem skiptist þannig: eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og u.þ.b. 30 m2 vinnuaðstaða. Vinnustofan er búin nauðsynlegustu búsáhöldum, svo sem sængurfatnaði, síma, þvottavél, þurrkara, útvarpi, sjónvarpi og málaratrönum.

 

Tilgangurinn með starfrækslu gestavinnustofunnar er:

· Að gera listamönnum kleift að vinna að list sinni með því að veita þeim afnot af húsnæði í 1-3 mánuði í senn.

· Að gefa Akureyingum færi á að kynnast utanaðkomandi listamönnum og list þeirra.

· Að efla samskipti við Akureyringa á sviði lista.

 

Þess er vænst að gestir í vinnustofunni sjái sér fært að kynna list sína með einhverjum hætti meðan á dvöl stendur.

Meðal atriða sem höfð eru í huga við val á listamönnum er listferill og störf í þágu listarinnar.

Úthlutunarnefnd er skipuð af stjórn Gilfélagsins.

 

Umsóknarfrestur fyrir komandi ár er til 1. júní. Úthlutað er í ágúst. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu www.listagil.is - undir Listagil, Gestavinnustofa.

 

Frekari upplýsingar í síma 466-2609. Í netpósti llistagil@listagil.is

og á heimsíðu www.listagil.is

 


HAFNARBORG - Gestaíbúð

Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar,

Strandgötu 34, 220  Hafnarfirði.

 

s. 555 0080, fax 565 4480

hafnarborg@centrum.is

www.nifca.org/resi/Cities/Hafnarfjordur/Hafnarfjordur.html

 

Sótt um í gegnum NIFCA, dvalarkostnaður er enginn og listamaðurinn fær auk þess greiddar 5000 FM á mánuði

Gestavinnustofa með íbúð, u.þ.b. 128 fm. Íbúðin er 2ja herbergja með eldhúsi og baði. Í boði á vegum NIFCA 6 mánuði á ári: frá 1. maí til 31. október.

Umsóknarfrestur rennur venjulega út 1. apríl fyrir árið á eftir.
Vinnustofan er á efri hæð Listasafns Hafnarfjarðar: Hafnarborgar


Íbúðina er fyrir gesti Hafnarborgar 6 mánuði á ári.

 

Upplýsingar gefur, Pétrún Pétursdóttir, forstöðumaður

hafnarborg@hafnarfjordur.is

 


VARMAHLIÐ

c/o Bæjarskrifstofur Hveragerðisbæjar

Hverahlíð 24, 810 Hveragerði

 

s. 483 4000, 483 4802

e-mail: hk@hveragerdi.is

www.hveragerdi.is

 

Gestaíbúð fyrir listamenn.
Íbúð með húsgögnum og tækjum.

Hveragerðisbær greiðir kostnað vegna rafmagns og hita. Gestalistamenn fá endurgjaldslaus afnot af húsinu.
.

Menningarmálanefnd Hveragerðisbæjar auglýsir árlega eftir umsóknum um dvöl í húsinu Varmahlíð í Hveragerði.  Óskað er eftir því að í skriflegum umsóknum, sem senda á til menningarmálanefndar Hveragerðisbæjar, Hverahlíð 24, 810 Hveragerði, komi fram æskilegt dvalartímabil og að hverju listamaðurinn hyggst vinna meðan á dvölinni stendur.
Allar frekari upplýsingar veitir Helga Kristjánsdóttir á skrifstofu Hveragerðisbæjar í síma 483 4000.

Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu Hveragerðisbæjar http://www/hveragerdi.is

 


 

SKAFTFELL, Miðstöð myndlistar á Austurlandi

Austurvegur 42
710, Seyðisfirði

s. 472 1632

e-mail:  skaftfell@skaftfell.is

http://skaftfell.is

Gestavinnustofur Skaftfells eru í þrem húsum á Seyðisfirði; í Skaftfelli, á Hóli við Vesturveg og í járnhúsinu á Fossgötu. Vinnustofurnar eru allar með tveim svefnherbergjum og aðstöðu fyrir allt að 5 manns, góðu vinnurými, baðherbergi með sturtu, fullbúin eldhús og handklæði og lín fyrir 5 manns.

Gestavinnustofurnar eru fyrst og fremst fyrir myndlistarmenn og fræðimenn innan þess fags. Þó eru listamenn sem vinna á milli miðla velkomnir. Umsóknir frá hópum eru einnig vel séðar. Listamönnum er frjálst að taka með sér fjölskyldu en þá þarf það að koma fram í umsókn.

Dvalargjöld eru 50.000 kr á mánuði og dvalartími er 1 ? 6 mánuði.

Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári, frá 1. júní ? 1. september. Ekki er tekið við umsóknum á öðrum tíma.

Frekari upplýsingar, umsóknareiðublað og skilmála má sjá á http://skaftfell.is

     

 

Skaftfell residency program
Skaftfell Center for Visual Art

Austurvegur 42
710 Seydisfjördur
Iceland

    * Duration: 1 ? 6 months
    * Discipline: Visual Arts
    * Target group: International


Description
Skaftfell was founded in the year 1998 by a group of art enthusiasts in the town of Seydisfjordur in East-Iceland. The center is situated in a grand old house, built in 1907. Skaftfell runs an exhibition space with running exhibitions the whole year through and an art education program. On the top floor there is a beautiful artists residency available for visual artists and scholars. Two other charming houses in town are dedicated to the residency program. On the ground floor of Skaftfell there is a Bistro with wireless Internet and a good library of book-art, art-books and related material. In addition to serving fabulous food and coffee the Bistro hosts the West-wall gallery, a space dedicated to showing the works of young, experimental artists, artists in residence and local talent.


Accommodation Information

The residencies are located in three different houses in the town of Seyðisfjörður.
The houses all have two bedrooms, bathroom with shower, kitchen, a small living room aria and studio/working facilities. The houses are all equipped with beds, dining sets, duvets, linen and towels for 5 people.

Each house is only given to a single applicant at a time. Applications from groups and/or families are welcomed.

For further information on each house visit the website http://skaftfell.is


Paid by artist
Month 50.000 iskr, one month to be paid in advance at booking.


Deadline
1st September


Criteria
Skaftfell uses the following criteria when evaluating applicants:

    * Primarily the quality of the applicants work as indicated by submitted visual documentation.
    * A record of exhibition and curriculum vitae.
    * Demonstration of a serious and consistent dedication of the professional practice of visual arts through submitted documents.
    * Evidence that the applicant is at a critical juncture in their development that will be advanced by the residency.

Although Skaftfell?s residency program is aimed at artists working with in the field of visual art, experimental artists working in intermediate methods are eligible to apply regardless of the nature of their primary profession/education within the arts.

Check the website for the application form and additional information on the residencies.


Application address
Austurvegur 42
710 Seydisfjördur
Iceland
Telephone +354 4721632
E-mail  skaftfell@skaftfell.is
http://skaftfell.is

 

 

 

Hóll - The Birgir Andrésson resideny

Skaftfell Center for Visula Art

 

Vesturvegur 15

710 Seydisfjördur

Iceland

 

    * Duration: June-July-August 1 - 3 weeks. September through May 1 - 3 months.

    * Discipline: Visual Arts

    * Targetgroup: International

 

Description

Birgir Andrésson (1955 - 2007) was one of Iceland?s most important artists of his generation and his legacy is an important part of the history of Icelandic art. Hóll  was Birgis house where he spent some time every year, working. The residency is for artists and scholars and it is run in the memory of Birgir.

 

Hóll is a house on Vesturvegur in Seyðisfjörður. The house is a small two storey building from early 1900. It stands on the banks of Fjarðará River. On the ground floor there is a living room with a good workspace overlooking the river, a small kitchen and a bathroom with a shower and a washing machine. Upstairs there are two bedrooms, one with two beds, and the other with a single bed. The house is equipped with two extra beds, dining set, duvets, linen and towels for 5 people.

 

Paid by artist

Week 19.000 iskr. Month 50.000 iskr, to be paid in advance.

 

Deadline

1st October

 

Application address

Austurvegur 42

710 Seydisfjördur

Iceland

Telephone +354 4721632

E-mail  skaftfell@skaftfell.is

www.skaftfell.is

  


KLAUSTRIÐ - SKRIÐUKLAUSTUR Í FLJÓTSDAL

701 Egilsstaðir

 

s. 471 2990

e-mail:  klaustur@skridulaustur.is

www.skriduklaustur.is

 

Gunnarsstofnun rekur gestaíbúð fyrir lista- og fræðimenn að Skriðuklaustri. Íbúðin kallast Klaustrið og hefur tekið á móti góðum gestum allt frá 1989 sem dvalið hafa þar og unnið að ákveðnum verkefnum. Auk tveggja herbergja íbúðar (svefnherbergi, stofa, eldhús og bað) hefur dvalargestur afnot af vinnustofu með nettengdri tölvu á neðri hæð hússins.

Árið 1999 setti stjórn Gunnarsstofnunar reglur um gestaíbúðina. Þær kveða m.a. á um að dvalartími sé 3-6 vikur og þau verkefni er varða Gunnar Gunnarsson, Austurland eða austfirsk fræði njóti forgangs við úthlutun. Að öðru leyti eiga allir jafnmikla möguleika á að fá úthlutað Klaustrinu, hvort sem þeir eru listamenn, rithöfundar, fræðimenn, tónlistarmenn eða sérfróðir um eitthvað allt annað. Stjórn stofnunarinnar og forstöðumaður úthluta Klaustrinu á grundvelli þeirra verkefna sem ætlunin er að vinna á staðnum.

Auglýst er eftir umsóknum um Klaustrið í september ár hvert fyrir næsta almanaksár. Ákvörðun um úthlutun liggur síðan fyrir í nóvember. Áhugasamir geta sent inn umsókn hvenær sem er og eru hvattir til að setja sig í samband við forstöðumann Gunnarsstofnunar til að leita upplýsinga, annað hvort í síma 471-2990 eða með tölvupósti.

Einnig er hægt að nota umsóknareyðublað sem tengill er við hér til vinstri eða styðjast við það. Þá er hægt að fá umsóknareyðublaðið á PDF-formi fyrir Acrobat Reader hér.

Umsóknir skulu sendar á: ,, Gunnarsstofnun " Skriðuklaustri  701 Egilsstaðir

 


BÆR Á HÖFÐASTRÖND, SKAGAFIRÐI

http://www.baer.is/



Vefslóð um gestavinnustofur víðs vegar um heiminn:
http://www.resartis.org

 

©SIM  Samband íslenskra myndlistarmanna - Pósthólf 1115, IS-121, Reykjavík, Ísland - Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland.
Sími: 551 1346 - Fax: 562 6656 - netfang: sim@simnet.is - Skrifstofan er opin frá kl. 10:00 til 16:00.