Notandanafn:

Lykilorð:

 
Fréttir
Sýningar í gangi
Afstaðnar sýningar

10.3.2010 14:14:00
Guðrún Halldórsdóttir SÍMari mars mánaðar

Guðrún Halldórsdóttir nam list sína og starfaði að henni í Bandaríkjunum frá 1990 til 2005, en síðan þá hefur hún unnið hér heima. Verk hennar hafa verið valin á fjölda sýninga vítt um Ameríku, þar sem hún hefur sýnt ein og með öðrum listamönnum. Hér heima hefur Guðrún haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum.

Sl. sumar sýndi Guðrún í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og í Ketilhúsinu á Akureyri. Sú sýning þykir kynna nýja hlið á listamanninum, en á þau má líta sem þversnið af mannlífinu, sem samsama má meðal annars viðburðum síðustu mánaða á Íslandi.

Verkin sem sýnd eru hjá SÍM í marsmánuði voru meðal verkanna á sýningum sumarsins.

Slóðin á heimasíðu Guðrúnar er www.gudrunart.com og þar getur að líta þverskurð af verkum hennar frá fyrri tíð, eins og hinum nýrri.

 

 

©SIM  Samband íslenskra myndlistarmanna - Pósthólf 1115, IS-121, Reykjavík, Ísland - Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland.
Sími: 551 1346 - Fax: 562 6656 - netfang: sim@simnet.is - Skrifstofan er opin frá kl. 10:00 til 16:00.