Container Fersk Finnsk Höggmyndalist
29.8. til 20.9.2009
Kalle Mustonen, Atte Uotila, Antti-Ville Reinikainen og Petri Eskelinen
GalleriBox, Akureyri
Laugardaginn 29. Ágúst kl. 15:00 opnar samsýningin CONTAINER í
GalleríBOX, Kaupvangsstræti 10, 600 Akureyri.
Hópurinn var mótaður fyrir heppilega tilviljun og er ætlun hans að
færa ferskan blæ af finnskri nútímahöggmyndalist til Akureyriar. Það
sem sameinar þessa fjóra einstaklinga er forvitnilegt og rannsakandi
viðhorf gagnvart efnisviðnum. Höggmyndalist er mjög breitt hugtak er
nota má yfir mismunandi tilraunir. Antti-Ville Reinikainen og Atte
Uotila nota félagsfræðilega nálgun, á meðan Kalle Mustonen og Petri
Eskelinen rannsaka tæknilegan og eðlisfræðilegan efnisvið.
Vísindarleg nálgum við myndlistina þurrkar í burt gagnslausar reglur
sem eru einum of algengar í heimi fagurlistar. Niðurstöðurnar af
þessum annað hvort tæknilegu eða félagsfræðilegu leikjum er mannleg
yfirlýsing um frjálsan einstakling. Skilaboðin eru ekki prentuð á
tilbúin verk, heldur byggjast þau upp í samhengi við lífstíl
myndhöggvarans.
Þrír af Container hópnum byggja sýninguna á föstudegi og laugardegi,
Áhörfendum er frjálst að skoða verkin frá viðarkössum til rýmissins í
galleriBOX.
Myndlistarmenn eru
* Petri Eskelinen www.petrieskelinen.com
* Kalle Mustonen mustone.blogspot.com
* Antti-Ville Reinikainen www.avreinikainen.net
* Atte Uotila www.atteuotila.com