Notandanafn:

Lykilorð:

 
Fréttir
Sýningar í gangi
Afstaðnar sýningar

14.8.2009 13:13:00
Myndlist og berjamó!

M y n d l i s t  o g  b e r j a m ó !

Dalir - Hólar - handverk

Myndlistarmenn sem taka þátt í sýningunni eru:

Guðjón Ketilsson
Hannes Lárusson
Hildur Bjarnadóttir
Hlynur Helgason
Sólveig Aðalsteinsdóttir
Unnar Auðarson
Þóra Sigurðardóttir

Hildur Bjarnadóttir situr yfir sýningunni helgina 15-16 ágúst.
Sýningin stendur til 31. ágúst og er opin alla daga frá 14-18.

Dalir - Hólar - handverk er sýningarverkefni í Dölum, við Breiðafjörð og á Ströndum.  Náttúra og menning svæðisins er uppspretta verkanna. Skólahús gamla landbúnaðarskólans í Ólafsdal og umhverfi hans er útgangspunktur sýningarinnar. Húsið hefur staðið ónotað og óbreytt í áratugi og er mikil upplifun að koma þar inn.

Skólinn var á mörkum þeirra þriggja sýslna sem sýningin spannar og naut stuðnings sveitanna í kring á öndvegisdögum sínum. Vegna þessa var ákveðið að nýta húsiðsem þungamiðju sýningarinnar og tengja þaðan í lykilstaði í
nágrannasveitarfélögum.

Sýningin fer þannig fram á 4 stöðum: í húsi gamla Landbúnaðarskólans í Ólafsdal, á Sauðfjársetrinu í Sævangi við Steingrímsfjörð, í Byggðasafni Dalamanna að Laugum í Sælingsdal og í Bátasafni Breiðafjarðar, Reykhólum.
Sýningin leiðir gesti um svæðið með því að staðsetja verk sýningarinnar á fjórum stöðum og prenta leiðakort - sem jafnframt er sýningarskrá. sjá: www.artinfo.is/olafsdalur

Menningarráð Vesturlands og Menningarráð Vestfjarða styrkja viðburðinn.

 

 

 

©SIM  Samband íslenskra myndlistarmanna - Pósthólf 1115, IS-121, Reykjavík, Ísland - Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland.
Sími: 551 1346 - Fax: 562 6656 - netfang: sim@simnet.is - Skrifstofan er opin frá kl. 10:00 til 16:00.