?Uppúr haganum? sýning Karlottu Blöndal opnar í Suðsuðvestur
Laugardaginn 18. júlí næstkomandi kl.16 opnar Karlotta Blöndal sýningu í
Suðsuðvestur í Reykjanesbæ.
Þar tengir hún saman tvö verk, frá 2007 og 1999, og sýnir þau í nýju ljósi
og í nýjum aðstæðum, með nokkrum tilfæringum og viðbótum. Í verkinu Hótel,
frá 2007, er heimildaljósmynd frá hótelbrunanum á Siglufirði 1957
fjölrituð og er hluti úr henni teiknuð á vegginn. Samhliða því sýnir hún
verkið Reassessment, upphaflega frá 1999, sem er innsetning úr við.
Sýningin í heild sinni heitir svo Uppúr haganum.
Sýningin stendur yfir til 16. ágúst og eru allir hjartanlega velkomnir.
Suðsuðvestur er á Hafnargötu 22, þar er opið laugardaga og sunnudaga frá
kl.14 17 og eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar fást í síma 662 8785
(Inga) eða 846 5042 (Karlotta)
SUÐSUÐVESTUR
Hafnargata 22
230 Reykjanesbær
Sími; 421 2225
Inga Þ. Jóhannsdóttir Gsm:662 8785