Notandanafn:

Lykilorð:

 
Fréttir
Sýningar í gangi
Afstaðnar sýningar

9.7.2009 13:13:00
Íslenski Safnadagurinn í Náttúrufræðistofu Kópavogs

Íslenski Safnadagurinn 12. júlí 
 
Í ár verður Íslenski safna-dagurinn haldinn sunnudaginn 12. júlí. Markmiðið er að vekja fólk til vitundar um mikilvægi safnastarfs, vísindalegra vinnubragða og miðlunar á upplýsingum um sameiginleg verðmæti þjóðarinnar. Á Náttúrufræðistofunni verður boðið upp á þrjá dagskrárliði:
 
Kl. 14:00. MINJAR, náttúra í myndlist og myndlist í náttúru
Þórdís Jóhannesdóttir sýningarstjóri kynnir samsýningu 18 listamanna, en flest verkin eru unnin sérstaklega fyrir húsakynni Náttúrufræðistofunnar.

Kl. 15:00. Kúluskítur og kuðungableikjur
Dr. Hilmar J. Malmquist forstöðumaður fræðir gesti um sýningarsafn Náttúrufræðistofunnar og rannsóknir. Gestum býðst að kíkja á furður í smásjá og sérstök kynning verður á hinum einstaka kúluskít.

Kl. 16:00. Plöntuskoðun á Borgarholti
Þóra Hrafnsdóttur líffræðingur fer um Borgarholtið og fræðir um villtan gróður sem vart á sér hliðstæðu í miðju þéttbýli höfuðborgarsvæðisins.

Íslenski safnadagurinn er haldinn annan sunnudag í júlí ár hvert. Markmiðið er að vekja fólk til vitundar um mikilvægi safnastarfs, vísindalegra vinnubragða og miðlunar á upplýsingum um sameiginleg verðmæti þjóðarinnar.

 

©SIM  Samband íslenskra myndlistarmanna - Pósthólf 1115, IS-121, Reykjavík, Ísland - Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland.
Sími: 551 1346 - Fax: 562 6656 - netfang: sim@simnet.is - Skrifstofan er opin frá kl. 10:00 til 16:00.