Notandanafn:

Lykilorð:

 
Félagatal
Heimasíður
Aðildarfélög
Félagsaðild
Lög
Stjórn
Nefndir og ráð
Saga
Minningarsjóður

INNTÖKUSKILYRÐI Í SÍM


Til að hafa rétt til inngöngu í Samband íslenskra myndlistarmanna þarf umsækjandi að hafa lokið háskólaprófi í myndlist frá viðurkenndum listaháskóla eða hafa aðra sambærilega menntun samkvæmt yfirlýsingu viðkomandi skóla.



Að öðrum kosti þarf umsækjandi að uppfylla fjögur af neðangreindum skilyrðum.


1.  Hafa aðra menntun í myndlist (t.d. nám á framhaldsskólastigi, námskeið, einkatíma eða annað)  staðfest með yfirlýsingu viðkomandi kennara/ skóla.


2. Hafa haldið eina eða fleiri einkasýningar í viðurkenndum sýningarstöðum.
 Staðfesting fylgi.


3. Hafa tekið þátt í alþjóðlegri sýningu, samsýningu styrktri af opinberum aðilum eða ekki færri en fimm samsýningum öðrum. 
 Staðfesting fylgi.


4. Hafa verið falið af dómnefnd, að vinna að listskreytingu á opinberum vettvangi.
Staðfesting fylgi.


5. Eiga minnst eitt verk í opinberri eigu, keypt af viðkomandi safnráði eða matsnefnd.
Staðfesting fylgi.


6. Hafa hlotið opinberan styrk eða starfslaun. 
Staðfesting fylgi.




Umsókn um aðild að SÍM er tekin fyrir af stjórn SÍM einu sinni í mánuði. 

Umsóknir skulu vera vandaðar.

 

Umsóknareyðublað fyrir þá sem eru með háskólapróf í myndlist (eða MHÍ próf)
Umsóknareyðublað 2010

 

©SIM  Samband íslenskra myndlistarmanna - Pósthólf 1115, IS-121, Reykjavík, Ísland - Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland.
Sími: 551 1346 - Fax: 562 6656 - netfang: sim@simnet.is - Skrifstofan er opin frá kl. 10:00 til 16:00.