|
SAMBAND ÍSLENSKRA MYNDLISTARMANNA
Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) var stofnað árið 1982. SÍM er hagsmuna og stéttarfélag liðlega 700 starfandi myndlistarmanna. SÍM samanstendur af eftirtöldum aðildarfélögum og félagsmönnum þeirra ásamt félögum með einstaklingsaðild að SÍM: Félagi íslenskra myndlistarmanna (FÍM), Íslenskri grafík, Leirlistarfélaginu, Myndhöggvarafélaginum í Reykjavík (MHR), Félagi íslenskra samtímaljósmyndara, Myndlistarfélaginu og Textílfélaginu.
SÍM er málsvari myndlistarmanna gagnvart hinu opinbera og starfrækir skrifstofu að Hafnarstræti 16, Reykjavík. SÍM er aðili að Bandalagi íslenskra listamanna (BÍL), Listahátíð í Reykjavík, Alþjóðlegu listamannasamtökunum (IAA), Billedkunstnere i Norden (BIN), Norræna Myndlistarbandalaginu (NKF) og European Visual Artists Network (EVAN). SÍM er aðili að Kynningarmiðstöð myndlistar CIA.IS og Myndstefi- Myndhöfundasjóði Íslands.
SÍM vinnur að hagsmunum félagsmanna sinna á breiðum grundvelli. SÍM skipar fulltrúa sína hin ýmsu ráð og nefndir á vegum hins opinbera m.a.: Myndlistarnefnd menntamálaráðuneytisins, Safnráð Listasafns Íslands, Listskreytingasjóð ríkisins, Starfslaunasjóð listamanna, Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar, Listahátíð í Reykjavík, úthlutunarnefnd Menningarmálanefndar Hveragerðisbæjar, Safnráð Listasafns Akureyrar, Leikminjasafn Íslands, Menningarsjóð félagsheimila og Bygginga- og listanefnd kirkjunnar.
SÍM aðstoðar félagsmenn í faglegum málum s.s. í sambandi við höfundarétt, vsk, tryggingar, flutninga, tollamál, sýningahald og lögfræðileg atriði.
Hjá SÍM eru fyrirliggjandi: gjaldskrá SÍM, skattaleiðbeiningar fyrir myndlistarmenn, Samkeppnisreglur SÍM, samningar milli listamanna, sýningarsala og sölugallería, samningur og reglur er varða leigu á myndverkum til fyrirtækja og stofnana, keppnislýsingar o.fl. Öll aðstoð sem SÍM veitir stendur félagsmönnum til boða endurgjaldslaust.
SÍM er aðili að Myndstefi - myndhöfundasjóði Íslands og eru félagsmenn í SÍM sjálfkrafa félagsmenn í Myndstefi. SÍM starfrækir tölvu- og þjónustuver í SÍM - húsinu í samvinnu við Myndstef fyrir myndlistarmenn og aðra myndhöfunda. Í SÍM - húsinu er aðstaða fyrir félagsmenn til að halda fundi og fyrirlestra eða aðrar myndlistarlegar uppákomur. Aðstaðan stendur félagsmönnum til boða endurgjaldslaust.
Skrifstofa SÍM rekur UMM.IS - Upplýsingavef um myndlist og myndhöfunda á Íslandi en vefurinn er byggður á gögnum frá Upplýsingamiðstöð myndlistar sem starrækt var um 10 ára skeið með stuðningi íslenska ríkisins. Gagnagrunnurinn sem bæði er á íslensku og ensku, er gríðarlega stór og margþættur og hefur reynst ómissandi fyrir ýmsar menningarstofnanir, myndlistarmenn, fræðimenn og kennara og erlenda sýningarstjóra.
SÍM rekur um 90 vinnustofur fyrir íslenska myndlistarmenn og hönnuði, annars vegar eru 50 á Seljavegi 32 og á Korpúlfsstöðum. Árið 2006 tók SÍM húsið Seljaveg 32 sem áður hýsti höfuðstöðvar Landhelgisgæslunnar, á leigu af ríkissjóði Íslands. Reksturinn hvílir því algerlega á herðum listamanna, bæði þeirra heimamanna sem leigja þar að staðaldri en einnig erlendu gestanna sem greiða fulla leigu fyrir vistina. SÍM rekur Sjónlistamiðstöð á Korpúlfsstöðum en hún var stofnuð í upphafi árs 2007 í samstarfi við Samtök hönnuða ? Form Ísland. Á Korpúlfsstöðum er, auk áðurnefndrar gestaíbúðar og vinnustofa fyrir listamenn og hönnuði, rekið útibú frá Myndlistarskólanum í Reykjavík. Sjónlistamiðstöðin verður í framtíðinni öflug miðstöð fyrir fræðslu á sviði sjónmennta en þar verið að byggja upp öll helstu verkstæði sem listamenn og hönnuðir þurfa að hafa aðgang að. Aðstaðan verður ekki eingöngu til afnota fyrir listamenn og hönnuði heldur verða verkstæðin opin almenningi undir handleiðslu umsjónarmanna og kennara. Ennfremur er á Korpúlfsstöðum stór og glæsilegur salur þar sem ætlunin er að halda metnaðarfullar sýningar
SÍM gefur út rafrænt fréttablað 4 sinnum á ári og eru þau birt á heimasíðu SÍM, einnig er hægt að óska eftir því að fá fréttabréfið sent í venjulegum pósti.
Félagsmenn fá árlega félagsskírteini sem er sambland af innlendu og alþjóðlegu skírteini (IAA). Skírteinið veitir frían aðgang að öllum helstu listasöfun hérlendis og erlendis. Auk þess er hægt að frá afslátt hjá mörgum verslunum og þjónustufyrirtækjum sem versla með myndlistarvörur gegn framvísun skírteinisins.
SÍM rekur gestavinnustofur og gistirými fyrir erlenda listamenn og íslenska listamenn sem búsettir eru erlendis eða á landsbyggðinni. Gestavinnustofurnar eru í Hafnarstræti 16, á Seljavegi 32 og á Korpúlfsstöðum. Í gestavinnustofum SÍM dvelja 10 -12 listamenn í hverjum mánuði. Gestavinnustofur SÍM eru afar mikilvægur þáttur í íslensku listalífi enda einar sinnar tegundar í Reykjavík.
Skrifstofa SÍM rekur sjóðina Mugg og Ferðasjóð Muggs sem eru samstarfsverkefni milli Reykjavíkurborgar, SÍM, Myndstefs og Flugleiða og styrkja myndlistarmenn til ferða og dvalar erlendis vegna myndlistarverkefna.
Inntökuskilyrði í SÍM
Félagsgjald SÍM er frádráttarbært frá skatti og er kr. 12.000.- fyrir árið 2009.
SÍM miðlar upplýsingum til félagsmanna sinna aðallega í gegnum þessa heimasíðu.
Formaður SÍM er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður.
Framkvæmdastjóri SÍM er Ingibjörg Gunnlaugsdóttir. Starfmaður á skrifstofu er Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir.
|